Við gerum þetta verkefni með því að fara inn á hagstofa.is og fundum verkefni eins og: Fjöldi fólks, kosningar og skólar. Svo settum við þetta inn á Excel og færðum svo það yfir á glogster.com.
Bloggar | 24.10.2014 | 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veturinn 2014
Íslenska
Í íslensku er ég búin að gera margt
skemmtilegt meðal annars: ferilritun.
Í ferilritun er ég búin að gera sögu sem
heitir Hundalíf. Ég er líka búin að vera í
yndislestri sem er mjög skemmtilegt líka.
Enska
Við lærðum mikið í ensku til dæmis:
Halloween og Hickory, Dickory, Dock
sem eru þrjár enskar bækur. Ég er bara
komin með Hickory.
Stærðfræði
Í stærðfræði lærðum við í Stiku 2a og
Stiku 2b. Svo gerðum við brú og mynstur.
Við lærðum um ýmis form eins og ferninga, rétthyrninga, þríhyrninga og fleira.
Verk og list
Verk og list finnst mér skemmtilegast af öllu í
skólanum. Í smíðum gerðum við flotta hornhillu,
Í saumum gerðum við krúttlegan kodda og í matreiðslu
elduðum við og bökuðum margt skemmtilegt eins og:
Lummur, fisk og pönnukökur. Enduðum svo á því
að bjóða foreldrum í kaffi og kökur.
Íþróttir/sund/útileikir/tónmennt
Í öllum þessum greinum hef ég verið að gera margt
skemmtilegt. Í útileikjum förum við í marga skemmtilega
leiki. Í íþróttum förum við í peeptest, púlum og tökum
margar armbeygjur. Í sundi syndum við margskonar sundtök
eins og: Skriðsund, bringusund, skólabaksund, marvaða,
björgunarsund og svo mætti lengi telja. Svo er það
tónmennt, það finnst mér skemmtilegast af öllu. Við gerðum
margt skemmtilegt eins og plakat, semja lag, spila á
hljóðfæri.
Geitungar
Það var skrítið að læra um eitthvað sem er ógeðslegt en
svona er lífið maður fær ekki að ráða öllu. En ég lærði margt
til dæmis: það er til margar tegundir af geitungum,
roðageitungur, trjágeitungur og margt margt fleira.
Bloggið
Í 6. bekk bjuggum við til blogg og box. Það var mjög
gaman og sniðugt. Við setjum margt inn á bloggið
en áður en við setjum eitthvað inn á bloggið þurfum
við fyrst að setja það inn á box.com og færa það
inn á bloggið. Þá geta allir séð hvað þú ert búin að
vera að gera.
Vorferðin
Vorferðin var eitt af skemmtilegasta sem ég hef gert í
skólanum. Fyrst tókum við rútu að Borgarnesi og fengum
okkur nesti. Þegar við vorum búin að borða nesti fórum
við á Landnámssetrið. Á Landnámssetrinu fengum við
að hlusta á Egilssögu og skoðuðum myndir í sal á meðan.
Að lokum
Mér er búið að líða mjög vel í vetur það er út af því að
Mér finnst ég búin að fá góðar einkunnir. Mér leið vel í frímó
og öllu sem ég var að gera. Mér fannst ferilritun
skemmtilegast út af því að mér finnst gaman að búa til
sögur. Mér fannst enskan svolítið erfið út af því að ég er
ekkert sérlega góð í að skrifa enskuna. Og að lokum
fannst mér stærðfræðin standa svolítið upp úr öllu hinu því
mér fannst ég vera öruggari sérstaklega þegar ég þurfti að
taka stærðfræðina með til útlanda.
Bloggar | 4.6.2014 | 11:08 (breytt kl. 11:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi saga er um hund sem segir frá sínu lífi í hans orðum
Bloggar | 2.5.2014 | 11:18 (breytt kl. 11:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 10.4.2014 | 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 4.4.2014 | 18:01 (breytt kl. 18:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar